Psalms 14

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Heimskinginn segir í hjarta sínu: ,,Guð er ekki til.`` Ill og andstyggileg er breytni þeirra, enginn gjörir það sem gott er. 2Drottinn lítur af himni niður á mennina til þess að sjá, hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs. 3Allir eru viknir af leið, allir spilltir, enginn gjörir það sem gott er _ ekki einn. 4Skyldu þeir ekki fá að kenna á því, allir illgjörðamennirnir, þeir er eta lýð minn sem brauð væri og ákalla eigi Drottin? 5Þá skulu þeir verða mjög óttaslegnir, því að Guð er hjá kynslóð réttlátra. 6Þér megið láta ráð hinna hrjáðu til skammar verða, því að Drottinn er samt athvarf þeirra. 7Ó að hjálpræði Ísraels komi frá Síon! Þegar Drottinn snýr við hag lýðs síns, skal Jakob fagna og Ísrael gleðjast.
Copyright information for Icelandic